Þegar þú leitar inn á við, finnur þú svörin, kraftinn og töfrana sem búa innra með þér
Yoga nidra og tónheilun
Viltu endurheimta lífskraftinn og sterkari tengingu við þið?
Service Description
Á þessu námskeiði förum við inn á við, þar sem ró, jafnvægi og innri styrkur fá að vaxa. Þú lærir að mæta öldum lífsins með meiri festu, skýrleika og mýkt með yoga nidra og tónheilun, fræðslu og verkefnum. Á námskeiðinu er athyglinni beint að innri samskiptum, hugsunum, tilfinningum, viðhorfi, styrkleikum og gildum, með það að markmiði að bæta lífsgæði og skapa meiri vellíðan í daglegu lífi. Námskeiðið hentar þeim sem: • Vilja draga úr streitu, spennu og þreytu • Vilja upplifa meiri innri ró • Vilja komast af sjálfstýringu í aukna meðvitund • Vilja styrkja sambandið við sig og gera meira af því sem skiptir máli Fyrirkomulag námskeiðsins • Hittumst einu sinni í viku online þar sem ég leiði Yoga Nidra djúpslökun og tónheilun sem styður endurheimt og innri kyrrð. • Lokuð fb síða þar sem ég deili fróðleik og verkefnum í hverri viku og þar sem er rými tl að spyrja, deila og spegla • Bókin að endurvekja lífskraftinn • Upptaka á öllum tímum á meðan á námskeiðinu stendur (og tvær vikur eftir að því líkur) Fræðsla fyrir hvern tíma • Fyrir hvern tíma færðu stutta fræðslu og verkefni sem undirbýr þig fyrir upplifunina í Yoga Nidra. • Þetta hjálpar þér að skilja hvað er að gerast í líkama og huga, þannig að upplifunin dýpkar og festist betur Hvernig hjálpar yoga nidra og tónheilun í þessari vegferð? Yoga nidra og tónheilun hjálpar okkur að: • Róa taugakerfið • Draga úr streitu og spennu • Auka líkamsvitund • Skapa rými fyrir breytingar Þegar líkaminn er í ró og öryggi verður auðveldara að vinna með hugsanir og tilfinningar og skapa varanlegar breytingar. Ávinningur: • Innri ró og jafnvægi • Aukin meðvitund og skýrleiki • Betra samband við sjálfan þig • Líf í takt við eigin gildi og það sem skiptir þig máli í lífinu • Nota ásetning sem styður þig í daglegum athöfnum • Verkfæri sem nýtast þér til að halda áfram að vaxa Uppbygging Við byrjum á að hægja á og taka eftir – færa okkur úr sjálfstýringu yfir í meðvitaða nærveru Við skoðum okkar innri samskipti og byrjum að skapa mýkri og nærandi innri rödd Við lærum að leyfa tilfinningum að vera – án þess að halda í þær eða ýta þeim frá ið æfum okkur í að sleppa tökum, treysta ferlinu og stíga skref út fyrir þægindarammann Tenging við þinn innri áttavita og því sem skiptir þig raunverulega máli Við mótum skýra sýn og tökum fyrstu skrefin í átt að lífi í takt við þig Því meira sem þú leyfir þér að mæta þér – því dýpri verður upplifunin
Contact Details
8608956
kolbrun@hugarthol.is